

.jpeg)
Eftir einn mánuð af 'kjötbollu' er loksins kominn tími til að 'fess up' og hætta að kvelja Gimma með þessari stórskemmtilegu kjötbollu. Kjötbollan er semsagt ekkert annað en hin stórskemmtilega Exposé blob sem Palli tók sig til og breytti myndunum fyrir úr þessari smekklausu kúlu í eitthvað skemmtilegt, fyrst Cartman og svo í kjötbolluna góðu (hægt að sjá glitta í hana á screenshot-inu (fyrsta myndin) hér til hægri neðst niðri, vinstra megin). Kjötbollan gerði í raun ekkert annað en að birtast bara af og til (með tilheyrandi kill-i á Dockinu) heldur er kannski spurning um að þú, Grímur Jónsson, passir uppá tvennt.
1. Ekki hafa opið fyrir SSH aðgang að vélinni þinni.
2. Ef ekki er hægt að sleppa við nr. 1 þá er alveg lágmark að nota ekki login/password sem allir þekkja ;)
Til að bæta upp fyrir 'skaðann' sem þú hefur hlotið af þessu hefur kjötbollan verið svo góð að hlaða niður kvikmynd fyrir þig sem þú getur vonandi haft gagn og e.t.v. eitthvað gaman af.
Vonum að þú hafir lært þína lexíu.
Palli og Laddi.